Skólaslit í dag
Vegna skólaslitanna í Hörpu í dag kl. 14 verður skólinn lokaður frá kl. 12. Gleðilega hátíð!
Vegna skólaslitanna í Hörpu í dag kl. 14 verður skólinn lokaður frá kl. 12. Gleðilega hátíð!
Skólaslitin verða miðvikudaginn 25. maí kl. 14 í Silfurbergi í Hörpu Æfing þann 24. maí kl. 18:00 í Hörpu í Silfurbergi Allir mæta á æfingu fyrir útskrift í Hörpu. Farið verður yfir skipulagið varðandi uppröðun og hvernig afhendingu skírteina er háttað. Mikilvægt að allt gangi snurðulaust á útskriftardaginn. Ljósmyndarinn Jóhannes Long mætir líka og fer [...]
Innan hefur nú verið opnuð hjá flestum nemendum skólans. Einhverjir nemendur skulda enn gjöld, aðrir eiga eftir að skila bókum á bókasafnið og ekki náðu allir landi í mætingu eða einingafjölda. Aðgangur þessara nemenda að Innunni er ekki opinn og verða þeir að mæta á skrifstofu skólans eða til umsjónarkennara mánudaginn 23. maí milli kl. [...]
FB fékk nýverið úthlutað háum styrk í flokknum Starfsmenntun eða um 12 milljónum króna fyrir verkefnið Námsferðir efla fagmennsku. Á hverju ári sendir FB nemendur og starfsmenn til annarra landa til að taka þátt í verkefnum og námskeiðum eða í starfsþjálfun tengda námi þeirra í skólanum. Á þessu ári fara 20 verknámsnemendur FB í starfsnám til Danmerkur, [...]
Lifandi og framsækin lokasýning listnámsbrautar FB var síðustu helgi í einum af vatnstönkum í Perlunni. Á sýningunni voru verk eftir nemendur sem hafa lokið textílhönnunar- eða myndlistaráföngum í vetur. Verkin eru unnin í ýmsa miðla eins og málverk, innsetningar, teikningar, skúlptúr, vídeóverk og hönnun á fatnaði. Hér má sjá nokkrar myndir af sýningunni. Einnig eru fjölmargar [...]
Vorhátíð Nemendafélags FB var haldin einn fimmtudag í lok apríl sl. og var þrusu fjör hjá nemendum og starfsmönnum þennan dag. Öllum var boðið upp á pítsu og gos, ísbíllinn og vöfflubíllinn komu við. Nemendum gafst síðan kostur á að henda rjóma framan í starfsmenn skólans og samnemendur og söfnuðust tugir þúsunda króna til styrktar [...]
Síðasti almenni prófdagur er þriðjudaginn 17. maí og miðvikudaginn 18. maí verða sjúkrapróf. Skólaslit verða í Hörpu miðvikudaginn 25. maí kl. 14.
Þessa dagana er útskriftarhópur starfsbrautar staddur í útskriftarferð í London. Í hópnum eru sex nemendur og tveir kennarar, Halldóra og Jóhann. Nemendurnir hafa safnað fyrir ferðinni í vetur og má fylgjast með þeim á Facebooksíðu starfsbrautar FB (www.facebook.com/starfsbraut). Ferðin stendur yfir í fjóra daga og eru þeir vel nýttir til að skoða allt það markverðasta [...]
Mjög mikil gróska hefur verið á önninni í skólanum í tengslum við heimsóknir og námsdvalir frá Evrópu. Eru þessar heimsóknir í tengslum við fjölmörg samstarfsverkefni skólans í gegnum Erasmus+ og ýmsa aðra sjóði. Þessar heimsóknir sem og námsferðir okkar nemenda og kennara til Evrópu auka víðsýni og fjölbreytileikann. Fata- og textílkennarar frá Eistlandi dvöldu [...]
Lokasýning listnámsnemenda verður í Perlunni 7. og 8. maí frá kl. 14 - 17. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í fréttinni.