Farsældarþjónusta

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt af Alþingi 22. júní 2021. Í lögunum kemur fram að nemendur undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra geti óskað eftir stuðningi tengiliðs sem veitir upplýsingar og leiðbeiningar um sérhæfða þjónustu innan og utan skólans. Tilgangur laganna er að auka samstarf þjónustuaðila í þágu farsældar barna og tryggja að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að þjónustu við hæfi.

Til að óska eftir farsældarþjónustu þurfa forráðamenn að hafa samband við einhvern tengiliðanna sem nefndir eru hér fyrir neðan. Guðrún er tengiliður fyrir nemendur á starfsbraut en Elísabet, Fríða og Sesselja eru tengiliðir fyrir aðra nemendur.

Tengiliðir vegna farsældarþjónustu:
Elísabet Vala Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi: evg@fb.is
Fríða Kristjánsdóttir, náms- og starfsráðgjafi: frk@fb.is
Sesselja Pétursdóttir, náms- og starfsráðgjafi: sep@fb.is
Guðrún Hallgrímsdóttir, fagstjóri starfsbrautar: gha@fb.is