Lokasýning listnámsbrautar verður í Perlunni 7. og 8. maí. Opnun verður laugardaginn 7. maí kl. 14.
Opið verður báða dagana frá kl. 14 til 17.
Sýnd verða verk eftir nemendur sem lokið hafa textílhönnun- eða myndlistaráföngum í vetur. Verkin eru unnin í ýmsa miðla s.s. málverk, innsetningar, teikningar, skúlptúr, videoverk og hönnun á fatnaði.
Hér er á ferðinni lifandi og framsækin sýning í óvenjulegu og spennandi sýningarrými.
Allir eru velkomnir á sýninguna.