Markþjálfi

Viltu efla þig og bæta? Auka skipulagið? Ná lengra? Líða betur? Setja þér markmið?
Þá gæti verið gott að vinna með markþjálfa!

Markþjálfi við skólann er María Sólveig Héðinsdóttir. Nemendur geta pantað tíma hjá Maríu á netfanginu msh@fb.is. Öllum nemendum FB stendur til boða að koma til markþjálfa.

  • Markþjálfi hlustar á nemendur og ræðir við þá í trúnaði
  • Hittir nemendur reglulega
  • Hjálpar nemendum að setja sér markmið
  • Styður nemandann í að ná markmiðum sínum
  • Veitir nemendum jákvæða athygli
  • Vinnur með styrkleika nemenda