Sigurvegarar á spænskuhátíð

Til hamingju FB! Spænskuhátíðin var haldin á dögunum í Veröld – Húsi Vigdísar. Spænska sendiráðið á Íslandi heldur keppnina. Nemendur gerðu stuttmynd og hver skóli sendi eitt myndband frá sér í keppnina. Í ár áttu nemendur að vinna með heimsmarkmið númer 4 „Menntun fyrir alla“. Skólarnir sem unnu í ár voru Versló, MH og FB! [...]

2024-02-09T12:58:35+00:006. febrúar 2024|Categories: Fréttir|

Nemendur úr FB í Evrópuverkefni

11 nemendur úr nemendafélagi FB fóru til Belgíu á dögunum. Þau tóku þátt í mjög spennandi Evrópuverkefni ásamt nemendum frá Belgíu og Ítalíu. Verkefnið snérist um málefni Evrópu, gildi og samfélag. Nemendur brugðu sér í hlutverk þingmanna Evrópuþingsins og lagði hver skóli fram frumvarp, fjallaði um það og svo voru greidd atkvæði líkt og á [...]

2024-02-05T14:53:43+00:005. febrúar 2024|Categories: Fréttir|

Jöfnunarstyrkur

Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk vegna vorannar 2024 er til 15. febrúar næstkomandi. Eingöngu er hægt að sækja um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skilríkjum á heimasíðu Menntasjóðs. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á menntasjodur@menntasjodur.is eða skoðað vef Menntasjóðs námsmanna.

2024-01-29T11:12:56+00:0026. janúar 2024|Categories: Fréttir|

10 ára afmæli Fab Lab Reykjavík

Fab Lab Reykjavík sem er staðsett í FB og er hluti af skapandi samfélagi Breiðholts fagnaði 10 ára afmæli sl. miðvikudag. Boðið var til glæsilegrar veislu með fjölbreyttri dagskrá þar sem m.a. Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB  ávörpuðu samkomuna. Til hamingju Fab Lab Reykjavík! Myndir: [...]

2024-01-26T13:44:27+00:0026. janúar 2024|Categories: Fréttir, Uncategorized|

Lið FB komst áfram í Gettu betur

Lið FB sigraði lið FÁ í fyrstu viðureign Gettu betur í Útvarpshúsinu í gær. Í liði FB eru þau Steindór Örn Gunnarsson, Davíð Örn Sigurðarson og Bergdís Ósk Vilhjálmsdóttir. Varamaður er Markús Ægir Gunnarsson. Þjálfarar eru Tryggvi Dór Gíslason og Elmar Gísli Gíslason. Til hamingju öll!

2024-01-09T10:13:29+00:009. janúar 2024|Categories: Fréttir|

Upphaf vorannar 2024

Gleðilegt ár! Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 4. janúar. Töflubreytingar verða miðvikudaginn 3. janúar í stofu 204 frá klukkan 8:30 – 16:00. Við bendum á að þeir nemendur sem eru skráðir í íþróttir (áfanga sem byrjar á ÍÞR…) hafa aðgang að World Class Breiðholti á virkum dögum frá kl. 8-16, án endurgjalds. Aðrir geta fengið þannig [...]

2024-01-01T17:58:18+00:001. janúar 2024|Categories: Fréttir|

Útskriftarhátíð FB 20. desember

Þann 20. desember útskrifuðust 132 nemendur frá FB við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpu. Þá útskrifuðust 14 nemendur með tvö lokapróf, 47 útskrifuðust með stúdentspróf, 30 af húsasmiðabraut, 29 af rafvirkjabraut, 15 sjúkraliðar og 11 af snyrtifræðibraut. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni og Víðir Stefánsson aðstoðarskólameistari flutti yfirlitsávarp. Ingveldur Þóra Ragnheiðardóttir, nýstúdents söng tvö [...]

2023-12-22T15:52:56+00:0021. desember 2023|Categories: Fréttir|

Opnun skrifstofu yfir jól og áramót

Föstudaginn 15. desember kl. 12-13 verða kennarar til viðtals og nemendur í list- og verknámi geta sótt möppur og verkefni. Opnunartími skrifstofu yfir jól og áramót verður sem hér segir: 20. desember 8-12 21. desember 8-15 22.-26. desember lokað 27. desember 10-12 28.-29. desember lokað 2. janúar 10-15 Miðvikudaginn 3. janúar verða töflubreytingar og kennsla [...]

2023-12-14T15:18:27+00:0014. desember 2023|Categories: Fréttir|
Go to Top