Námsmatsdagur föstudaginn 1. mars
Föstudagurinn 1. mars n.k. er námsmatsdagur og starfsþróunardagur starfsfólks, hefðbundin kennsla fellur því niður þann dag.
Föstudagurinn 1. mars n.k. er námsmatsdagur og starfsþróunardagur starfsfólks, hefðbundin kennsla fellur því niður þann dag.
Söngkeppni FB fór fram á dögunum þar sem Sigurborg António Smáradóttir bar sigur úr býtum. Hún mun keppa fyrir hönd FB í söngkeppni framhaldsskólanna í apríl. Til hamingju Sigurborg!
Mánudaginn 19. febrúar er vetrarfrí og skólinn lokaður. Dagana 20.-23. febrúar eru námsmatsdagar. Hefðbundin kennsla hefst aftur mánudaginn 26. febrúar.
Til hamingju FB! Spænskuhátíðin var haldin á dögunum í Veröld – Húsi Vigdísar. Spænska sendiráðið á Íslandi heldur keppnina. Nemendur gerðu stuttmynd og hver skóli sendi eitt myndband frá sér í keppnina. Í ár áttu nemendur að vinna með heimsmarkmið númer 4 „Menntun fyrir alla“. Skólarnir sem unnu í ár voru Versló, MH og FB! [...]
11 nemendur úr nemendafélagi FB fóru til Belgíu á dögunum. Þau tóku þátt í mjög spennandi Evrópuverkefni ásamt nemendum frá Belgíu og Ítalíu. Verkefnið snérist um málefni Evrópu, gildi og samfélag. Nemendur brugðu sér í hlutverk þingmanna Evrópuþingsins og lagði hver skóli fram frumvarp, fjallaði um það og svo voru greidd atkvæði líkt og á [...]
Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk vegna vorannar 2024 er til 15. febrúar næstkomandi. Eingöngu er hægt að sækja um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skilríkjum á heimasíðu Menntasjóðs. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á menntasjodur@menntasjodur.is eða skoðað vef Menntasjóðs námsmanna.
Fab Lab Reykjavík sem er staðsett í FB og er hluti af skapandi samfélagi Breiðholts fagnaði 10 ára afmæli sl. miðvikudag. Boðið var til glæsilegrar veislu með fjölbreyttri dagskrá þar sem m.a. Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB ávörpuðu samkomuna. Til hamingju Fab Lab Reykjavík! Myndir: [...]
Gettu betur lið FB sigraði lið FSU í 16 liða úrslitum sl. föstudag og er þar með komið í átta liða úrslit! Þau Bergdís Ósk, Davíð Örn og Steindór Örn munu mæta liði MH í sjónvarpssal þann 29. febrúar. Áfram FB!
Búið er að opna fyrir umsóknir eldri nemenda á Menntagátt og verður hægt að sækja um til 31. maí. Upplýsingar um innritun nemenda sem eru að ljúka grunnskóla má sjá hér.
Lið FB sigraði lið FÁ í fyrstu viðureign Gettu betur í Útvarpshúsinu í gær. Í liði FB eru þau Steindór Örn Gunnarsson, Davíð Örn Sigurðarson og Bergdís Ósk Vilhjálmsdóttir. Varamaður er Markús Ægir Gunnarsson. Þjálfarar eru Tryggvi Dór Gíslason og Elmar Gísli Gíslason. Til hamingju öll!