Hin 18 ára Eva Sóllilja Einarsdóttir, nemandi okkar á opinni braut, fer á morgun til Litháen og keppir á Baltic Olympiad in Informatics / Eystrasalts Ólympíuleikunum í forritun. Það eru 6 nemendur frá Íslandi sem voru valin til keppninnar og 10 lönd sem taka þátt. Við óskum Evu Sóllilju góðs gengis í keppninni!