Þann 27. maí, voru 163 nemendur útskrifaðir frá FB, þar af 20 með tvö próf. 69 útskrifuðust af bóknámsbrautum, 38 af húsasmíðabraut, 41 af rafvirkjabraut, 14 af sjúkraliðabraut, 9 af snyrtifræðibraut og 12 af starfsbraut.

Athöfnin var haldin í Silfurbergi Hörpu við húsfylli og mikinn hátíðleik. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni og Víðir Stefánsson aðstoðarskólameistari flutti yfirlitsávarp. Lovísa Margrét Eðvarðsdóttir, fyrsta árs nemi á myndlistarbraut, söng tvö lög við undirleik Pálma Sigurhjartarsonar en auk hans lék Jakob van Oosterhout á trompet.

Fjölmargir nemendur hlutu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur, dúx skólans var Kjartan Helgi Guðmundsson sem útskrifaðist af húsasmiðabraut en lauk einnig stúdentsprófi. Ræður nýútskrifaðra fluttu þau Kjartan Helgi og Natalía Hrafnsdóttir sem útskrifaðist af rafvirkjabraut auk þess að ljúka stúdentsprófi.

Guðrún Hrefna opnaði athöfnina á því að flytja ljóð eftir Ísak Harðarson sem lést á dögunum. Þá þakkaði hún Stefáni Andréssyni fyrir sinn langa og farsæla starfsferil við FB en hann lætur nú af störfum sökum aldurs.

Í ræðu sinni minntist Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari, meðal annars á það að FB hefur löngum verið með mestan fjölda allra skóla útskrifaðra nemenda af húsasmiða-, rafvirkja- og sjúkraliðabrautum. Hann minntist einnig á mikilvægi þess að eldri kynslóðir sýni skilning á þeim veruleika sem hin svokallaða Z-kynslóð ólst upp við, með stanslausu áreiti samfélagsmiðla og ýmissa tækja og tækni sem áður var óþekkt en hefur í för með sér aukinn kvíða og ýmis annars konar vandamál sem ungt fólk glímir við.

Myndirnar tók Haraldur Guðjónsson Thors ljósmyndari en fleiri myndir birtast á næstu dögum á Flicr síðu skólans (þrír punktar efst í hægra horni heimasíðunnar).

Hér má sjá lista yfir alla verðlaunahafa.