Eva Sóllilja Einarsdóttir varð í fyrsta sæti í forritunarkeppni framhaldsskólanna, Beta deild! Keppnin var haldin í Háskólanum í Reykjavík dagana 8. og 9. mars og var Eva Sóllilja ein í liði en venjulega eru þrír þátttakendur í hverju liði. Stórkostlegur árangur, til hamingju Eva Sóllilja!