Samstarf Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

FB er einn af samstarfsskólum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um menntun framhaldsskólakennara. Samstarfsskólar sjá um vettvangsnám kennaranema sem er 10 ECTS einingar og tekur hver skóli árlega á móti 8 – 15 kennaranemum sem eru að undirbúa sig undir kennslu í mismunandi námsgreinum. Vettvangsnámið nær yfir eitt skólaár. Kennaranemar sækja vikulega fundi og kynnast fjölbreyttum þáttum í starfsemi skólans. Þannig fá þeir tækifæri til að fylgjast með kennslustundum, mæta á kennarafundi, aðstoða við kennslu og að lokum fá þeir æfingu í að kenna sjálfir undir handleiðslu leiðsagnakennara sem eru starfandi kennarar við FB. Kennaranemarnir gera verkefni í háskólanum sem eru tengd með markvissum hætti skólastarfi FB. Samstarfið er því dýrmætt fyrir kennaranemana, starfsþróun leiðsagnakennara FB og Menntavísindasviðs. Sérstakur verkefnisstjóri hefur umsjón með kennaranemum og er í samstarfi við Menntavísindasvið og verkefnisstjóra í öðrum framhaldsskólum sem sjá um vettvangsnámið í sínum skólum.

Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, kynningarstjóri sér um verkefnastjórn kennaranema.