Þeir Ásgeir Þ. Kristinsson og Helgi Guðlaugsson sölumenn á Berker búnaði hjá fyrirtækinu Johan Rönning færðu rafiðnadeild FB og skólanum að gjöf tækjabúnað til að setja upp forritanleg hússtjórnarkerfi. Tækin eru mjög dýr og frábært að geta, fyrir þeirra tilstilli, kynnt nemendum nýjustu tækni á sviði forritanlegra raflagna. Helgi Reimarsson kennari á rafiðnadeild veitti gjöfinni viðtöku ásamt Guðrúnu Hrefnu Guðmundsdóttur skólameistara FB. Við þökkum kærlega fyrir okkur.