Útskriftarhátíð verður í Silfurbergi Hörpu þann 20. desember kl.14:00 og lýkur um kl. 15:45. Allir útskriftarnemar eiga að vera komnir í Hörpu kl. 12:30 en þá er hópmyndataka. Æfing fyrir útskriftarnema verður mánudaginn 19. desember kl. 18:00. Við hvetjum útskriftarnema til þess að bjóða vinum og vandamönnum í útskriftina, það er nóg pláss.