Útskrift FB verður föstudaginn 18. desember í matsal skólans. Útskrifað verður eftir brautum og hefst útskriftin kl. 13. Afhent verða samtals 121 lokapróf. Þá útskrifast 8 nemendur með tvö lokapróf. Alls útskriftast 66 nemendur með stúdentspróf, 16 húsasmiðir, 18 rafvirkjar, 13 sjúkraliðar og 9 útskrifast af snyrtibraut. Í ljósi aðstæðna verða engir gestir við athöfnina en henni verður streymt á Youtube rás skólans.

Dagskrá

  • Ávarp skólameistara
  • Tónlist
  • Kveðja fagstjóra
  • Afhending prófskírteina
  • Kveðja nýútskrifaðra
  • Kveðja námsráðgjafa
  • Kveðja skólameistara
  • Tónlist