Viðtöl vegna breytinga á  stundatöflum í upphafi haustannar 2017 verða miðvikudaginn 16. og fimmtudaginn 17. ágúst frá kl. 8-16 í stofu 254. Miðvikudaginn 16. ágúst mæta útskriftarnemendur haust 2017 og vor 2018. Aðrir nemendur eru líka velkomnir. Fimmtudaginn 17. ágúst koma allir aðrir nemendur sem vilja láta breyta stundatöflu sinni. Töfluviðtölin verða í stofu 254. Nemendur taka númer fyrir framan stofuna og handhafi lægsta númers hverju sinni gengur fyrir. Ekki er hægt að breyta töflum eftir að viðtölum er lokið. Athugið einnig að nemendur hafa heimild til að skrá sig úr áföngum til 1. september. Fylla verður út sérstakt eyðublað sem fæst á skrifstofu skólans.