Árlega er efnt til samkeppni um gerð jólakorts í FB. Samkeppnin er auglýst meðal nemenda og er sigurtillagan notuð í jólakort skólans. Jólakortið er rafrænt í ár.

Frestur til að skila út tillögum rann út 5. desember. Alls bárust 15 tillögur. Sigurvegarinn að þessu sinni er Blær Þorfinns. Verðlaunin verða afhent við útskrift þann 20. desember 2023.

Dómnefnd skipuðu Kolbrún Sigurðardóttir fagstjóri listnáms, Harpa Dögg Kjartansdóttir og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari sem jafnframt var formaður dómnefndar.