Sæludagar FB verða fyrir og eftir hádegi 23-24 mars. Nokkrir viðburðir verða einnig heilsdagsviðburðir. Þarna er tækifæri fyrir nemendur til að brjóta upp hefðbundið skólastarf með því að fara t.d. í paintball, keilu, bíó, spila spil, perla, hjóla og margt fleira. Nemendur fá -4 fjarvistarstig fyrir hvern viðburð sem þau mæta á. Síðasti dagur til að skrá sig er 21. mars.