Þriðjudaginn 17. mars verður opið hús í FB frá kl. 17-18:30. Nemendur og starfsfólks skólans taka vel á móti gestum og kynna námsmöguleika skólans, félagslíf og aðstöðu til heimanáms. Opið verður í Smiðjunni við Hraunberg þar sem húsasmiðabraut og hluti myndlistarbrautar hefur aðstöðu. Þá verða ýmsar stofur opnar sem og bóksafn og lesstofa. Kaffi, kleinur og ávaxtasafi verður í boði. Nemendur 10. bekkjar og forráðamenn þeirra eru sérstaklega boðin velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur!