Í dag, fimmtudaginn 23. ágúst var lagt af stað í nýnemaferð að Flúðum í blíðskapar veðri. Um 150 nýnemar taka þátt í ferðinni sem skipulögð er af félagsmálafulltrúum skólans og nemendafélaginu NFB í sameiningu. Fimm kennarar kennarar eru með í för ásamt fulltrúm NFB. Gist verður eina nótt, farið í hópeflisleiki, grillað og efnt til kvöldvöku.