Nemendafélag skólans hélt nýverið jólaskemmtun í matsal skólans. Nemendur seldu jólasmákökur sem þeir bökuðu á staðnum og héldu bingó með glæsilegum vinningum. Leikin var hugljúf jólatónlist og heitt kakó var í boði. Allur ágóði kvöldsins rann til Mæðrastyrksnefndar, en alls söfnuðust 60.000 krónur. Á myndinni má sjá fulltrúa NFB þær Rakel Jónu Ásbjörnsdóttur forseta og Önju Björk Bjarnadóttur varaforseta. Við óskum nemendafélaginu til hamingju með vel heppnaða jólaskemmtun.