Upplýsingar til útskriftarnema

Útskrift FB verður föstudaginn 27. maí í Silfurbergi í Hörpu kl 14:00. Allir mæta á æfingu miðvikudaginn 25. maí kl. 18-19 í Hörpu!!!

Stutt myndatökuæfing í stóru tröppunum kl. 18.
Prufuútskrift í Silfurbergi. Farið yfir allt skipulag, dagskrá, uppröðun og afhendingu skírteina. Mikilvægt að allt gangi snurðulaust á útskriftardaginn.
Útskriftardagurinn föstudaginn 27. maí kl.14-15:45

Mæting kl. 12:45

Ef þú kemst ekki á útskriftina þá verður þú að láta Berglindi vita.

Myndataka kl. 13:00 – stundvíslega!
Allir eiga að vera búnir að taka af sér yfirhafnir og tilbúnir í myndatöku í stóru tröppunum kl. 13.
Hægt að geyma yfirhafnir baksviðs í Silfurbergi.
Kl. 13:30 – Salurinn opnar fyrir gesti. Við hvetjum ykkur til að bjóða sem flestum vinum og vandamönnum í útskriftina. Það er nóg pláss.

Létt lög leikin á flygilinn frá kl. 13:30 til kl. 14:00.

Útskrift kl. 14:00 –15:45  Allir í hátíðarskapi!

Ágústa Unnur, kynningarstjóri: agu@fb.is gsm: 8691861. Berglind H .Jónsdóttir, áfangastjóri: bhj@fb.is