Innan hefur verið opnuð þannig að nemendur geti valið fyrir vorönn 2016. Valið stendur til sunnudagsins 25. október.

Allar leiðbeiningar um valið eru á heimasíðu skólans undir þessari slóð: https://www.fb.is/namid/val-fyrir-naestu-onn/

Umsjónarkennarar aðstoða umsjónarnemendur sína. Áfangastjóri og námsráðgjafar aðstoða alla daga, vikuna 19. – 23. október, á milli kl. 10-12 á bókasafni skólans. Einnig er hægt að senda  tölvupóst á bhj@vu2016.carl.1984.is eða hringja í síma 570-5608 (Berglind) og asb@vu2016.carl.1984.is og sími 570-5620 (Ásgerður).

Það er nauðsynlegt að skoða öll skjölin sem eru á fyrrnefndri slóð: https://www.fb.is/namid/val-fyrir-naestu-onn/. Þar er t.d. hægt að sjá á alla áfanga í boði á önninni og sér valáfanga og hvaða íþróttaáfangar eru í boði hverju sinni. En skylda er að taka alla íþróttaáfanga sem eru á brautinni.

Gott er að hafa eftirfarandi við höndina þegar gengið er frá valinu:

– Útprentun á námsferli úr Innunni: www.inna.is.

– Prenta út valáætlun og fylla hana út: https://www.fb.is/wp-content/uploads/2014/01/valplan.pdf

Prenta út brautalýsingar: Allar brautir eru á heimasíðu skólans. https://www.fb.is/namid/namsbrautir/ og hægt að prenta út. En það er líka hægt að fá blaðið í biðstofu námsráðgjafa eða á skrifstofu skólans.

Nýjar námsbrautir eru á heimasíðunni undir þessari slóð: https://www.fb.is/nyjar-namsbrautir-2015h/

– Annaskipting áfanga á brautum, þetta er undir val fyrir næstu önn: https://www.fb.is/namid/val-fyrir-naestu-onn/.

Áfangalýsingar Eru á heimasíðu skólans. Og drögin að nýju áfangalýsingunum eru hér: https://drive.google.com/file/d/0B8efFCiCZ48QZ1RrMktiMGZxU3c/view

 

Nauðsynlegt er að velja fyrir 25. október

til að eiga skólavist vísa á næstu önn!