Skólasetning og nýnemamóttaka verður fimmtudaginn 17. ágúst frá kl. 13-16. Dagskrá hefst á skólasetningu Guðrúnar Hrefnu Guðmundsdóttur skólameistara í matsal nemenda Skuggaheimum kl. 13. Að því loknu sjá deildir skólans um dagskrá fyrir sína nemendur og lýkur dagskráinni með grillveislu á Miðgarði. Kennsla hefst svo föstudaginn 18. ágúst samkvæmt stundatöflu.