Í áfanganum eru rifjuð upp megineinkenni íslenska hljóðkerfisins. Farið er yfir íslenskar mállýskur og málfarsmun og nemendur kynnast félagslegum málvísindum. Skyldleiki tungumála er tekinn fyrir og ýmis einkenni tungumála skoðuð, einkum þeirra sem nemendur hafa lært. Í áfanganum eru einnig skoðuð einstök atriði íslenskrar málsögu.