Í áfanganum læra nemendur grunnatriði í véltrésmíði og notkun lofthandverkfæra. Fjallað er um algengustu trésmíðavélar og lofthandverkfæri sem notuð eru í tré- og byggingaiðnaði, meðferð þeirra og viðhald. Farið er yfir helstu notkunarmöguleika einstakra véla og tækja, stillingar, fyrirbyggjandi viðhald, hlífar, hjálpartæki, líkamsbeitingu og öryggismál og nemendur fá innsýn í að velja og skipta um helstu eggjárn. Kynntar eru mismunandi loftpressur og farið yfir gerð og notkun helstu loftverk­færa. Lögð er áhersla á notkunarleiðbeiningar og merkingar á tækjum og búnaði. Kennsla í áfang­anum byggir á innlögnum frá kennara þar sem hann útskýrir grunnatriði fyrir nemendum með sér­stakri áherslu á öryggisþætti en að öðru leyti er aðaláherslan á verkefni þar sem nemendur fá þjálfun í notkun véla og tækja. Mikilvægt er að nemendur læri um ábyrgð sína í umgengni við trésmíðavélar og að takast ekki á við vélavinnu án fullnægjandi undirbúnings, hjálpar- og öryggis­búnaðar. Áfanginn er bæði kenndur á námsbrautum fyrir húsasmiði og húsgagnasmiði.