Í áfanganum vinna nemendur verkefni sem felur í sér samþættingu þekkingar og færni sem aflað hefur verið í skóla og vinnustað á námstímanum. Áhersla er lögð á skipulagningu, framkvæmd, eftirlit, skráningu og rökstuðning en að öðru leyti er ekki um að ræða fyrirfram ákveðna verkþætti. Reynt er að líkja eftir aðstæðum í atvinnulífinu og því hefur nemandi aðgang að öllum fyrirliggjandi gögnum, efni, áhöldum og tækjum meðan á verkefninu stendur. Um er að ræða verklegan hluta sveinsprófs í húsasmíði. Þar sem verkefninu er ætlað að endurspegla raunverulegar aðstæður er æskilegt að tíminn sem ætlaður er til þess dreifist ekki á langt tímabil. Samhliða þessum áfanga er TRS1024.