Upphaf haustannar

5. ágúst 2026

Opnun skrifstofu, töflubreytingar, fyrsti kennsludagur og móttaka nýnema

Skrifstofa skólans hefur nú opnað aftur að loknu sumarleyfi og er opin mánudaga til fimmtudaga frá 8-15 og föstudaga frá 8-13. Stundatöflur verða aðgengilegar í Innu föstudaginn 14. ágúst.


Töfluviðtöl fara fram mánudaginn 17. ágúst kl. 8:30-16:00 í stofu 204. Þann dag verður einnig móttökudagskrá fyrir nýnema á matsal skólans kl. 15-17. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 18. ágúst.


Nýnemaferð verður þriðjudaginn 25. ágúst. Fimmtudaginn 27. ágúst verður kynningarfundur fyrir foreldra nýnema kl. 17:00-18:30 og nýnemakvöld beint í framhaldinu kl. 19. Nánari upplýsingar er að finna í bréfi sem barst nýnemum og forráðamönnum í júní.

3. nóvember 2026
Rafvirkjanemar FB í heimsókn í Hollandi
3. nóvember 2026
Snyrtifræðinemar FB í Kaupmannahöfn
Fleiri færslur