Náttúruvísindabraut
Námi á náttúruvísindabraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda. Brautin býr nemendur undir nám í háskóla í náttúruvísindum, heilbrigðisgreinum, stærðfræði, verkfræði og tæknigreinum. Námið er 200 framhaldsskólaeiningar og því lýkur með stúdentsprófi.
Inntökuskilyrði
Nemendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Nánar er fjallað um inntöku og inntökuskilyrði hér.
Athugið að meðfylgjandi brautarlýsing gildir fyrir nemendur sem hófu nám haustið 2025 eða síðar. Nemendur sem hófu nám fyrir þann tíma miða við eldri brautarlýsingu.
Einingafjöldi: 200
Yfirlit brautar (pdf)
BÓKNÁM
KJARNI BRAUTAR
| Náttúruvísindabraut, kjarni stúdentsbrauta | Grein | 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep | Samtals einingar | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Danska | DANS | 2AA05 | 5 | 5 | |||||
| Enska | ENSK | 2AF05 | 2RF05 | 3RS05 | 3AL05 | 10 | 10 | 20 | |
| Félagsvísindi | FÉLV | 1JS05 | 5 | 5 | |||||
| Íslenska | ÍSLE | 2II05 | 2KK05 | 3NN05 | 3VV05 | 10 | 10 | 20 | |
| Íþróttir | ÍÞRÓ | 1AÍ02 | 1GH02 | Íþróttir 1 eining | Íþróttir 1 eining | 6 | 6 | ||
| Lokaverkefni, velja annan hvorn áfangann | LOKA | 3LH03/3LR03 | 3 | 3 | |||||
| Saga | SAGA | 2EX05 | 5 | 5 | |||||
| Skyndihjálp | SKYN | 2EÁ01 | 1 | 1 | |||||
| Stærðfræði | STÆR | 2RM05 | 2MM05 | 2CT05 | 15 | 15 | |||
| Umhverfisfræði | UMHV | 1HM05 | 5 | 5 | |||||
| Umsjón nýnema | UMSJ | 1UM01 | 1UF01 | 2 | 2 | ||||
| Upplýsingatækni | UPPT | 2UT05 | 5 | 5 | |||||
| Þriðja mál: Spænska eða þýska | SPÆN/ÞÝSK | 1AA05 | 1BB05 | 1CC05 | 15 | 15 | |||
| 33 | 51 | 23 | 107 |
| Sérhæfing náttúruvísindabrautar | 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep | Samtals einingar | |||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Eðlisfræði | EÐLI | 2EU05 | 2AO05 | 3VK05 | 10 | 5 | 15 | ||
| Efnafræði | EFNA | 2GR05 | 2AL05 | 3LR05 | 10 | 5 | 15 | ||
| Jarðfræði | JARÐ | 1GJ05 | 2JM05 | 5 | 5 | 10 | |||
| Líffræði | LÍFF | 1GL05 | 2EÐ05 | 5 | 5 | 10 | |||
| Stærðfræði | STÆR | 3LV05 | 3VV05 | 3HD05 | 3YF05 | 20 | 20 | ||
| Forritun | FORR | 1GR05 | 5 | 5 | |||||
| Bundið áfangaval, velja tvo áfanga af þessum fjórum | FORR/JARÐ/LÍFF/LÍOL | FORR2ÞR05 | JARÐ3JM05 | LÍFF3EF05 | LÍOL2SS05 | 5 | 5 | 10 | |
| Val 8 einingar, passa þrepaskiptinguna | 5 | 3 | 8 | ||||||
| 15 | 40 | 38 | 93 | ||||||
| 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep | Samtals | ||||||
| Kjarni stúdentsbrauta | 33 | 51 | 23 | 107 | |||||
| Sérhæfing náttúruvísindabrautar | 15 | 40 | 38 | 93 | |||||
| Samtals einingar á þrepum | 48 | 91 | 61 | 200 |