NEMENDAÞJÓNUSTA
Ritver
Ritver
Ritverið er staðsett á bókasafni skólans. Þar getur þú meðal annars fengið aðstoð við:
- Að finna heimildir
- Að meta heimildir
- Heimildaskráningu
- Meðferð tilvitnana/tilvísana
- Málfar og stafsetningu
Snara og Málfríður
Nemendur í FB fá aðgang að Snöru og Málfríði hjá Málstað. Snara er leitarvél fyrir íslenskar orðabækur sem geymir yfir tvær milljónir uppflettiorða í tugum orðabóka og uppflettirita. Málfríður er yfirlestrar- og textavinnsluforrit. Til að komast inn á Málstað og nota Snöru og Málfríði þarf fyrst að nýskrá sig á Málstað. Það er gert með því að fara inn á www.malstadur.is, smella á „Nýskráning“ neðst í vinstra horninu og skrá sig með @fb.is-netfangi. Þá virkjast áskriftin. Bókasafnið veitir aðstoð varðandi Málstað.
Heimildaskráning - APA staðall
Hagnýtar vefsíður við ritgerðarskrif
Þú getur bókað tíma í ritveri með því að fara á bókasafnið eða senda póst á thst@fb.is
Bókasafnið er opið á mánudögum frá 9:45-15:30 og á þriðjudögum til föstudags kl. 8:15-15:30.