Snyrtifræðinemar FB í Kaupmannahöfn

3. nóvember 2026

Snyrtifræðinemar FB í Kaupmannahöfn


Nemendur á lokamisseri í snyrtifræði við FB fóru í Erasmus+ námsferð til Danmerkur ásamt kennurum sínum. Markmið ferðarinnar var að kynnast snyrtifræðinámi og starfsumhverfi greinarinnar í Danmörku, rétt áður en nemendur ljúka námi og halda út á vinnumarkaðinn.

 

Hópurinn heimsótti Nordic Skin College, einn af þekktustu snyrtifræðiskólum Norðurlanda, og kynnti sér kennsluaðferðir og námsskipulag skólans. Íslensku nemendurnir unnu einnig með dönskum nemendum skólans, skiptust á þekkingu og prófuðu meðferðir hvert á öðru.

Hópurinn fór einnig til Næstved á Suður-Sjálandi og heimsótti þar skóla Susanne Melchiorsen. Þar fengu nemendur að kynnast enn einni nálgun á kennslu í snyrtifræði og sjá hvernig unnið er utan höfuðborgarinnar.

 

Nemendur heimsóttu jafnframt snyrtistofur og heilsulind í Kaupmannahöfn, fylgdust með fagfólki að störfum og fræddust um þjónustu, vöruval og rekstur stofanna. Það var lærdómsríkt að bera dönsk vinnubrögð saman við það sem nemendur þekkja að heiman. Menningin fékk líka sitt pláss og hópurinn fór í skoðunarferð um borgina.

 

Við þökkum Nordic Skin College, Susanne Melchiorsen og hennar fólki í Næstved, og þeim fyrirtækjum sem tóku á móti hópnum kærlega fyrir.


3. nóvember 2026
Rafvirkjanemar FB í heimsókn í Hollandi
30. október 2026
Myndlistarnemar FB í námsferð til Ítalíu
Fleiri færslur