VERKNÁM

snyrtiBRAUT

Sækja um

Snyrtibraut

Nám og kennsla í snyrtifræði miðast við að veita almenna, faglega undirstöðumenntun í greininni, auka færni nemenda í meðferð húðvara og beitingu áhalda og tækja. Leitast er við að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð nemenda og auka hæfileika og getu þeirra til samvinnu við aðra. Þá er stefnt að því að nemendur auki færni sína til þess að standast kröfur iðngreina um nákvæmni, áreiðanleika og fagleg vinnubrögð. Snyrtifræðingar vinna í mikilli nálægð við viðskiptavini sína og því er mikilvægt að þjálfa samskiptafærni nemenda og getu þeirra til þess að öðlast skilning á þörfum viðskiptavina. Í námskrá snyrtibrautar er lögð áhersla á að rækta með nemendum jákvætt viðhorf til gæða í þjónustu. Hægt er að senda umsókn og fyrirspurnir til fagstjóra á nbs@fb.is.


Inntökuskilyrði

Nemendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Nánar er fjallað um inntöku og inntökuskilyrði hér.


Skipulag

Nám á snyrtibraut er 255 eininga nám á þriðja hæfniþrepi og tekur að jafnaði fjögur ár. Námið skiptist í bóklegt og verklegt nám í skóla 195 einingar og 60 eininga starfsþjálfun í allt að 9 mánuði eða 36 vikur, með rafrænni ferilbók. Námið undirbýr nemendur undir starf snyrtifræðings og er mikil áhersla lögð á mannleg samskipti, nærgætni, nákvæmni og stundvísi. Náminu á brautinni er jafnframt ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum. Að öllum áföngum loknum, bæði í skóla og starfsþjálfun á snyrtistofu sækir nemandi um að taka sveinspróf sem veitir lögverndaða starfsheitið snyrtifræðingur.


Námsmat

Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti og er ýmist samsett úr símati og lokaprófi eða eingöngu símati. Nánari tilhögun námsmats er í höndum kennara hverrar faggreinar. Í upphafi annar skal nemendum kynnt námsáætlun, námsmarkmið og tilhögun námsmats í hverjum áfanga.

Starfsþjálfun nemenda er allt að 9 mánuðir eða 36 vikur, með rafrænni ferilbók og er metin til 60 eininga.


Áfangar og einingar í vinnustaðanámi/starfsþjálfun birtast í INNU við lok námsins og koma fram á prófskírteininu frá skólanum.


Námsframvinda

Miðað er við að nemandi í fullu námi ljúki 33-34 einingum á önn. Lokaeinkunn hvers áfanga má ekki vera lægri en 5. Ljúka verður áföngum í kjarna í réttri röð. Reglur um skólasókn er hægt að lesa hér.


Athugið að meðfylgjandi brautarlýsing gildir fyrir nemendur sem hófu nám haustið 2025 eða síðar. Nemendur sem hófu nám fyrir þann tíma miða við eldri brautarlýsingu.


Yfirlit brautar (pdf)

KJARNI BRAUTAR (Almennum greinum snyrtibrautar verður að vera lokið áður en nám í sérgreinum hefst).

Snyrtibraut - Almennar greinar 1. þrep 2. þrep 3. þrep 4. þrep Samtals einingar
Danska DANS 2AA05 5 5
Efnafræði EFNA 2GR05 5 5
Enska ENSK 2AF05 2RF05 10 10
Heilbrigðisfræði HBFR 1HH05 5 5
Íslenska ÍSLE 2II05 10 10
Íþróttir ÍÞRÓ 1AÍ02 1GH02 Íþróttir 1 eining Íþróttir 1 eining 6 6
Líffræði LÍFF 1GL05 5 5
Líffæra- og lífeðlisfræði LÍOL 2SS05 2IL05 10 10
Næringarfræði NÆRI 1NN05 5 5
Skyndihjálp SKYN 2EÁ01 1 1
Stærðfræði STÆR 2RM05 5 5
Umsjón nýnema UMSJ 1UM01 1UF01 2 2
Upplýsingatækni UPPT 2UT05 5 5
23 51 0 0 74
Snyrtibraut - Sérgreinar 1. þrep 2. þrep 3. þrep 4. þrep Samtals einingar
Andlitsmeðferð verkl. og bókl. ANMF 1AA07 og 1AB04 2BA07 og 2BB04 3CA07 og 3CB04 4DA05 11 11 11 5 38
Efnisfræði snyrtivara ESNY 2EF05 1AA01 2BA05 1 10 11
Fótsnyrting FOTS 2BA04 2CA02 6 6
Förðun FÖRÐ 1AA03 1AB02 2BA04 3CA04 5 4 4 13
Handsnyrting HASN 1AA05 2BA03 3CA03 5 3 3 11
Hárfjarlæging HÁRF 2BA04 3CA02 4 2 6
Húðsjúkdómar HÚSJ 2CA05 5 5
Litun og plokkun LIPL 1AA03 3 3
Líkamsmeðferð LIKM 2AA05 2BA05 3DA05 10 5 15
Ritgerð - lokaverkefni RITG 3DA03 3 3
Sala og þjónusta SAÞJ 1AA03 3 3
Samvinna nema SAVN 2BA01 3DA01 1 1 2
Smitvarnir og sótthreinsun SMSÓ 1AA02 2 2
Stofutímar STOF 3BA03 3 3
Stofuþjálfun VINS 3DO06 6 6
Starfsþjálfun á snyrtistofu 9 mánuðir STAÞ 2NS20 3ÞS20 3SÆ20 20 40 60
30 75 77 5 187
1. þrep 2. þrep 3. þrep 4. þrep Samtals
Almennar greinar 23 51 0 0 74
Sérgreinar snyrtibrautar 30 75 77 5 187
Samtals einingar á þrepum 53 126 77 5 261