NEMENDAÞJÓNUSTA

Námsaðstoð

Námsaðstoð  - vinnustofa

Nemendum skólans stendur til boða fjölbreytt námsaðstoð. Í vinnustofu á bókasafni er kennari til aðstoðar við heimanám. Nemendur geta óskað eftir sérúrræðum í prófum og fengið aðstoð við skipulagningu náms og ráðgjöf um hagnýtar leiðir sem nýtast þeim í námi. Bóka má tíma hjá Hönnu í vinnustofu eða með því að senda póst á hna@fb.is.


Vinnustofan býður upp á gott næði til að læra fyrir alla nemendur skólans.


Vinnustofan er opin á mánudögum frá 9:45-15:30 og á þriðjudögum til föstudags kl. 8:15-15:30.

Aðstoð í stærðfræði er á miðvikudögum kl. 10:50-11:45 í stofu 203.

Jafningjastuðningur í raungreinum er einnig í boði fyrir nemendur, Hanna á vinnustofunni veitir nánari upplýsingar.

Nemendur eru hvattir til að nýta sér þessa aðstoð.


Umsjón með námsaðstoð hefur Hanna Ásgeirsdóttir, netfang: hna@fb.is, sími 570 5630.