Rafvirkjanemar FB í heimsókn í Hollandi

Rafvirkjanemar FB í heimsókn í Hollandi
Tíu nemendur af rafvirkjabraut FB, ásamt tveimur kennurum, eru nýkomnir heim úr átta daga ferð til Hollands. Ferðin var styrkt af Erasmus+ og var farin í samstarfi við DCTerra (Drenthe College Terra) í Emmen í norðausturhluta landsins.
Hópurinn hóf ferðina í Amsterdam þar sem dagurinn var nýttur í menningu og sögu: nemendur heimsóttu söfn, Önnu Frank-húsið og sigldu um síkin. Þaðan lá leiðin til Emmen þar sem við tók fjögurra daga dagskrá hjá DCTerra, 26.–29. október. Þar kynntust nemendur hollensku iðnnámi í gegnum fyrirlestra og verklegar vinnustofur, fóru í heimsóknir í fyrirtæki og tóku þátt í menningarviðburðum með heimamönnum.
Einn af hápunktum ferðarinnar var heimsókn í orkuver RWE í Eemshaven við norðurströnd Hollands. Þetta er eitt nútímalegasta orkuver sinnar tegundar í Evrópu, með um 1.580 MW afl, sem nægir til að sjá um tveimur milljónum hollenskra heimila fyrir rafmagni. Verið er knúið kolum og lífmassa, en stefnt er að því að breyta því smám saman alfarið í lífmassaver. Svæðið er jafnframt byggt upp sem orkumiðstöð þar sem fjárfest er í nýrri tækni á borð við stórar rafhlöður, rafskautskatla og framleiðslu á vetni. Það var fróðlegt fyrir nemendur að sjá raforkuframleiðslu í þessari stærðargráðu og ólíka þeirri sem við eigum að venjast hér á landi, þar sem nær öll raforka kemur frá vatnsafli og jarðvarma.
Kennararnir nýttu jafnframt tækifærið til að ræða við hollenska samstarfsfólk sitt um hvernig þróa megi samstarf skólanna áfram, og vonumst við til að heimsóknin verði upphafið að frekari ferðum nemenda og starfsfólks milli FB og DCTerra.
Ferðir sem þessar gefa nemendum dýrmæta innsýn í hvernig fagið er kennt og stundað í öðru landi, efla tungumálakunnáttu og sjálfstraust og víkka sjóndeildarhringinn. Við þökkum DCTerra kærlega fyrir frábærar móttökur.
