LISTNÁM

Fata- og  textílbraut

Sækja um

Fata- og textílbraut

Námi á fata- og textílbraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum og listgreinum með áherslu á fata- og textílgreinar. Auk bóklegra greina eru meðal kennslugreina á brautinni: tíska, textíll, hugmyndavinna, lista- og hönnunarsaga, kennsla á hönnunarforrit, tískuteikningar, fatasaumur, prjón, hekl, vefnaður, litun, þæfing og útsaumur. Námið veitir góðan undirbúning fyrir háskólanám í listgreinum, fatahönnun og menntunarfræðum. Námið er 200 framhaldsskólaeiningar og því lýkur með stúdentsprófi.


Inntökuskilyrði

Nemendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Nánar er fjallað um inntöku og inntökuskilyrði hér.


Athugið að meðfylgjandi brautarlýsing gildir fyrir nemendur sem hófu nám haustið 2025 eða síðar. Nemendur sem hófu nám fyrir þann tíma miða við eldri brautarlýsingu.


Einingafjöldi: 200

Nánari lýsing brautar.

Yfirlit brautar (pdf)

KJARNI BRAUTAR

Fata- og textílbraut, kjarni stúdentsbrauta í listnámi Grein 1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals einingar
Danska DANS 2AA05 5 5
Enska ENSK 2AF05 2RF05 3RS05 3AL05 10 10 20
Félagsvísindi FÉLV 1JS05 5 5
Íslenska ÍSLE 2II05 2KK05 3NN05 3VV05 10 10 20
Íþróttir ÍÞRÓ 1AÍ02 1GH02 Íþróttir 1 eining Íþróttir 1 eining 6 6
Saga SAGA 2EX05 5 5
Skyndihjálp SKYN 2EÁ01 1 1
Stærðfræði STÆR 2RM05 2FJ05/2MM05 2FJ05/2MM05 15 15
Umhverfisfræði UMHV 1HM05 5 5
Umsjón nýnema UMSJ 1UM01 1UF01 2 2
Upplýsingatækni UPPT 2UT05 5 5
Þriðja mál: Spænska eða þýska SPÆN/ÞÝSK 1AA05 1BB05 1CC05 15 15
33 51 20 104
Sérhæfing fata- og textílbrautar 1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals einingar
Fatasaumur - Fatahönnun FATS 2SP05 2SB05 3SS05 3SY05 10 10 20
Tískuteikning TTEI 1HH05 2TS05 2LF05 5 10 15
Nýsköpun og frumkvöðlamennt - Hönnun HÖNN 3NF05 5 5
Hönnunarsaga HÖSA 2HI05 3ST05 5 5 10
Prjón og hekl - Textílhönnun PRHE 2GR05 2FH05 10 10
Textíll TEXL 2LT05 2ÚB05 3MÓ05 3VF05 10 10 20
Textíll TEXL 1TH05 5 5
Lokaverkefni - fata og textíl SFH10 10 10
Val ein eining 1 1
11 45 40 96
1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals
Kjarni stúdentsbrauta í listnámi 33 51 20 104
Sérhæfing fata- og textílbrautar 11 45 40 96
Samtals einingar á þrepum 44 96 60 200