FB nemendur í Cambridge

18. ágúst 2026

FB nemendur í Cambridge – Uncomfortable Expedition

Dagana 1.–10. ágúst tóku þrír nemendur frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þátt í alþjóðlegu námskeiði á vegum Oxbridge Academy Courses (OAC) í Cambridge á Englandi. Það voru þau Dren Óli Zogaj, Róbert Hilmar Ágústsson og Þórey Bjarnadóttir. Um er að ræða átta daga námskeið sem kallast „The Uncomfortable Expedition" og er ætlað metnaðarfullum framhaldsskólanemendum sem vilja bæta enskukunnáttu sína samhliða því að þjálfa leiðtogahæfni, sjálfstraust og framsögn.


Á meðan dvölinni stóð bjuggu nemendurnir í Peterhouse College, einu af háskólasetrum Cambridge-háskóla, og sóttu fjölbreytta dagskrá undir leiðsögn leiðbeinenda úr röðum núverandi nemenda og fræðimanna við Oxford og Cambridge. Dagskráin samanstóð meðal annars af vinnustofum um frásagnarlist, minnistækni, ræðumennsku, nýsköpun og vísindi, auk menningarviðburða á borð við róður á ánni Cam, bogfimi, skoðunarferð til Lundúna og heimsókn í British Museum.


Áhersla námskeiðsins er á svokallaða „stýrða áskorun" (e. controlled discomfort) þar sem nemendur eru hvattir út fyrir þægindarammann í öruggu umhverfi, með það að markmiði að efla seiglu, sjálfstraust og hæfni til að takast á við krefjandi verkefni.

 

Sérstakur heiður féll í skaut hópsins frá FB þegar Róbert Hilmar var valinn „konungur" námskeiðsins, viðurkenning sem endurspeglar bæði dugnað og góða framkomu nemandans á meðan á dvölinni stóð.

5. ágúst 2026
Opnun skrifstofu, töflubreytingar, fyrsti kennsludagur og móttaka nýnema
26. júní 2026
Mynd: Stjórnarráð Íslands
Fleiri færslur