Útskriftarhátíð FB

27. maí 2026

168 nemendur útskrifuðust frá FB

Í dag útskrifuðust 168 nemendur frá FB við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpu, þar af útskrifuðust 14 með tvö skírteini. 36 nemendur luku prófi af húsasmiðabraut, 35 af rafvirkjabraut, 12 af starfsbraut, 17 sjúkraliðar útskrifuðust og 4 snyrtifræðingar. Nemendur sem luku stúdentsprófi voru 76. Að auki voru tveir skiptinemar í FB í vetur sem voru kvaddir við útskriftina.

Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni og Víðir Stefánsson aðstoðarskólameistari flutti yfirlitsávarp. Þau Karen Ósk Gísladóttir og Erlendur Stefán Gíslason fluttu ræður útskrifaðra, Emma Rose Noviczski nýstúdent söng við undirleik Pálma Sigurhjartarsonar auk þess sem hún lék sjálf á gítar, Elvar Bragi Kristjónsson lék á trompet við athöfnina.


Þremur kennurum var þakkað fyrir vel unnin störf en þau láta nú af störfum sökum aldurs. Það eru þau Halldóra N. Björnsdóttir kennari á starfsbraut, Guðrún Hallgrímsdóttir fagstjóri starfsbrautar og Jakob Þór Pétursson íþróttakennari. 


Útskriftarhátíðinni lauk á því að Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari var kvödd en hún lætur af störfum eftir þetta skólaár eftir að hafa verið skólameistari FB síðastliðin 17 ár eða frá árinu 2009. Víðir aðstoðarskólameistari flutti kveðjuræðu þar sem farið var yfir hennar góða starf í þágu skólans. 

Fjölmargir nemendur hlutu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur en Benedikt Fazakerley Richardsson á tölvubraut var dúx skólans með einkunnina 9,83 sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í FB og Erlendur Stefán Gíslason var semídúx með einkunnina 9,78.


Innilega til hamingju með áfangann öll sem eitt!


Fleiri fréttir og myndir frá útskriftinni birtast á næstu dögum.


Verðlaun í einstökum greinum voru sem hér segir:

Danska: Benedikt Fazakerley Richardsson, tölvubraut

Tölvugreinar: Benedikt Fazakerley Richardsson, tölvubraut 

Þýska: Benedikt Fazakerley Richardsson, tölvubraut

Enska: Emma Rose Noviczski, opin braut

Íslenska sem annað mál: Emma Rose Noviczski, opin braut

Enska: Sigurbjörg Salómonsdóttir, félagsvísindabraut

Félagsfræði: Sigurbjörg Salómonsdóttir, félagsvísindabraut

Fjölmiðlafræði: Sigurbjörg Salómonsdóttir, félagsvísindabraut

Sagnfræði: Sigurbjörg Salómonsdóttir, félagsvísindabraut

Spænska: Sigurbjörg Salómonsdóttir, félagsvísindabraut

Lokaritgerð til stúdentsprófs: Sigurbjörg Salómonsdóttir, félagsvísindabraut

Lokaritgerð til stúdentsprófs: Emma Rose Noviczski, opin braut

Menntaverðlaun HÍ: Benedikt Fazakerley Richardsson, tölvubraut

Fata- og textílgreinar: Helena Marín Y. Friðjónsdóttir, fata- og textílbraut

Íslenskuverðlaun Kristínar Arnalds: Erlendur Stefán Gíslason, tölvubraut

Stærðfræði: Erlendur Stefán Gíslason, tölvubraut

Tölvugreinar: Erlendur Stefán Gíslason, tölvubraut

Myndlistargreinar: Þórhildur Arna Kristjánsdóttir, myndlistarbraut

Sálfræði: Sara Líf Sigurðardóttir, félagsvísindabraut

Stærðfræði: Pétur Óli Ágústsson, tölvubraut

Tölvugreinar: Pétur Óli Ágústsson, tölvubraut

Viðurkenning fyrir mestu framfarir á starfsbraut: Tanya Rós Sigurbjörnsdóttir, starfsbraut

Húsasmiðabraut: Þórólfur Rúnar Þórólfsson, húsasmiðabraut

Rafvirkjabraut: Pijus Bickus, rafvirkjabraut

Snyrtibraut: Dagbjört Erla Baldursdóttir, snyrtibraut

Sjúkraliðabraut: Iwona Sóley Jansdóttir, sjúkraliðabraut

Verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi: Benedikt Fazakerley Richardsson, tölvubraut. Einkunn á stúdentsprófi: 9,83.

Viðurkenning frá Soroptimistaklúbbi Hóla og Fella: Emma Rose Noviczski. Einkunn á stúdentsprófi: 9,65.

Viðurkenning frá Rotaryklúbbi Breiðholts: Erlendur Stefán Gíslason, tölvubraut. Einkunn á stúdentsprófi: 9,78.

28. maí 2026
Opnunartími FB sumarið 2026
18. maí 2026
Lok vorannar
Fleiri færslur