Lagt af stað í skólum - leiðir til að læra lýðræði með Margaret Rasfeld

26. maí 2026

Margret Rasfeld stödd á Íslandi

Margret Rasfeld, þýsk baráttukona fyrir menntun og lýðræði, er stödd hér á landi og heldur tvær vinnustofur hér í FB með kennurum og skólafólki en auk þess flytur hún opið erindi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands 1. júní.


Í erindinu fjallar hún um hvernig skólar geta orðið vettvangur virkrar þátttöku, ábyrgðar og lýðræðislegrar menningar þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að nýta hæfileika sína, láta rödd sína heyrast og taka þátt í að móta samfélagið.


Margaret byggir á áratugalangri reynslu sinni sem skólastjóri og frumkvöðull í menntamálum og ræðir hvernig hægt sé að brjóta upp hefðbundna starfshætti til að skapa skólamenningu sem einkennist af trausti, virðingu, hugrekki og sjálfbærni.


„Við lifum á umbrotatímum. Ég er sannfærð um að við þurfum að breyta viðhorfum okkar og vitund í átt til meiri vonar, bjartsýni, hugrekkis og trausts. Menntun gegnir þar lykilhlutverki.“



Viðburðurinn á Sögu (Menntavísindasviði) er opinn öllum áhugasömum.


26. júní 2026
Mynd: Stjórnarráð Íslands
19. júní 2026
Nýnemar í FB eru 251 talsins
Fleiri færslur