Síðasta útskrift Guðrúnar Hrefnu

Guðrún Hrefna lætur af störfum
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari útskrifaði sinn síðasta nemendahóp á útskriftarhátíð FB í liðinni viku en hún lætur af störfum að þessu skólaári loknu. Víðir Stefánsson aðstoðarskólameistari hélt af þessu tilefni kveðjuræðu þar sem hann fór í stuttu máli yfir þennan tíma:
Það var í ársbyrjun 2009 að Guðrún Hrefna tók við embætti skólameistara FB og hefur gegnt því síðan, í rúm 17 ár. Á þessum tíma hefur skólinn tekið gagngerum breytingum á starfsemi sinni. Eitt af fyrstu verkum Guðrúnar var að hefja markvissa stefnumótunarvinnu með þátttöku alls starfsfólks. Sú vinna lagði grunn að þróun skólans á árunum á eftir.
Þegar Guðrún tók við embætti stóð skólinn frammi fyrir fjárhagsörðugleikum, sem jukust enn í kjölfar efnahagshrunsins. Afleiðingarnar voru meðal annars skerðing á námsframboði og kennslu, og hætt var við inntöku nýnema á verknámsbrautir um tíma. Á sama tíma dró úr aðsókn, ekki síst vegna stöðunnar í byggingaiðnaði. Þrátt fyrir þessar áskoranir var allt kapp lagt á að halda úti kennslu, og litlu mátti muna að húsasmiðabraut yrði lögð niður. Guðrún vann ötullega að því að bæta fjármögnun verknáms, sem skilaði sér síðar í breytingum á reiknireglu framlaga og bættri fjárhagsstöðu skólans.
Á starfstíma hennar hefur margt áunnist. Þar má nefna uppbyggingu stafrænnar smiðju (Fab Lab) og nýja byggingu fyrir verk- og listnám, sem hún átti stóran þátt í að gera að veruleika. Hún hefur einnig lagt mikla áherslu á vellíðan nemenda, sem meðal annars endurspeglast í því að FB hlaut Gulleplið árið 2019 fyrir framúrskarandi heilsueflingarstarf. Þá var upphaf skóladags fært til kl. 8:30 til að styðja betur við svefn og líðan nemenda.
Það er vart hægt að gera tæmandi grein fyrir öllum þeim umbótum sem Guðrún hefur leitt á þessum árum.
Fyrir hönd starfsfólks skólans vil ég þakka þér, Guðrún, fyrir afar gott samstarf og þitt ómetanlega framlag til skólans.

