Starfsbraut FB hlýtur Íslensku menntaverðlaunin 2026

12. nóvember 2026

Starfsbraut FB hlýtur Íslensku menntaverðlaunin 2026

Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti hefur hlotið Íslensku menntaverðlaunin 2026 fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 10. nóvember.


Íslensku menntaverðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi starf á sviði menntunar. Markmið þeirra er að vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og ungmennum og þeim sem stuðla að framþróun og umbótum í menntun.


Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun og sérstök hvatningarverðlaun. Þau ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs, auk listnáms og félags- og tómstundastarfs.


Einstaklingsmiðað nám í fyrirrúmi


Starfsbraut FB hlýtur verðlaunin fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem miðar að því að efla hæfni nemenda og gera þeim kleift að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs.


Starfsbrautin er ætluð nemendum með fötlun eða sérstaka námserfiðleika. Í starfinu er lögð rík áhersla á að efla sjálfstæði og sjálfsábyrgð nemenda og er námið sniðið að þörfum hvers og eins. Óskir, áhugasvið og styrkleikar nemenda eru hafðir að leiðarljósi við skipulag námsins.


Fjölbreytni einkennir kennsluna og lögð er áhersla á að námið tengist reynslu og daglegu lífi nemenda. Vettvangs- og fræðsluferðir, útinám, heimsóknir, ratleikir, verkleg viðfangsefni, sköpun, hreyfing, hönnun og lausnaleit eru meðal þeirra fjölbreyttu kennsluaðferða sem nýttar eru í starfinu.


Verðlaunin eru glæsileg viðurkenning á því metnaðarfulla og fjölbreytta starfi sem unnið er á Starfsbraut FB og þeirri áherslu sem þar er lögð á að mæta hverjum nemanda á hans forsendum.


Við í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti erum afar stolt af þessari viðurkenningu og óskum nemendum og starfsfólki Starfsbrautar hjartanlega til hamingju með Íslensku menntaverðlaunin 2026!


https://www.stjornarradid.is/frettir/grein/2026-11-12-islensku-menntaverdlaunin-2026/



9. nóvember 2026
Snyrtifræðinemar FB í Barcelona
4. nóvember 2026
Skráning á undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í rafvirkjun er hafin.
Fleiri færslur