Snyrtifræðinemar FB í Barcelona

9. nóvember 2026

Snyrtifræðinemar FB í Barcelona

Nemendur á þriðju önn í verk- og fagbóklegri snyrtifræði fóru í sex daga Erasmus+ ferð til Barcelona í október. Í hópnum voru 14 nemendur og tveir kennarar.


Hópurinn heimsótti skólann Institut de Terrassa, þar sem nemendur fengu meðal annars meðferðir hjá nemendum skólans. Einnig fengu þeir sýnikennslu í SQT lífrænni örnálameðferð og Kobido, japönsku andlitsnuddi, auk sýnikennslu og verklegrar þjálfunar í Ito-Thermie, japönsku hitanuddi með jurtareykelsi.


Þá var farið í heimsókn í Spa Silenci í Calella og í ýmsar menningarferðir, meðal annars í Casa Batlló í Barcelona.



Ferðin var afar vel heppnuð, lærdómsrík og skemmtileg.


4. nóvember 2026
Skráning á undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í rafvirkjun er hafin.
3. nóvember 2026
Rafvirkjanemar FB í heimsókn í Hollandi
Fleiri færslur