Prófsýning og útskrift

18. maí 2026

Lok vorannar

Föstudaginn 22. maí kl. 12:00-13:00 gefst nemendum og forráðamönnum tækifæri til að koma í skólann og fara yfir prófúrlausnir og námsmat vorannar með kennara. Kennarar verða til viðtals í stofum, listar yfir hvar kennarar eru til viðtals hanga í anddyri skólans. Verið velkomin!


Útskriftarhátíð FB fer fram í Silfurbergi, Hörpu miðvikudaginn 27. maí klukkan 14:00, salurinn opnar klukkan 13:30 og áætlað er að athöfnin taki um eina og hálfa klukkustund. Aðstandendur útskriftarefna eru hvattir til að mæta, það er nóg pláss fyrir gesti.


12. nóvember 2026
Starfsbraut FB hlýtur Íslensku menntaverðlaunin 2026 
9. nóvember 2026
Snyrtifræðinemar FB í Barcelona
Fleiri færslur