FB fær gjöf frá Johan Rönning og Hager

12. maí 2026

Johan Rönning og Hager gefa FB nýja töfluskápa

Í tilefni 50 ára afmælis FB og að á næsta ári mun skólinn taka í notkun nýja kennsluaðstöðu fyrir nemendur í rafvirkjun styrkti Johan Rönning, í samstarfi við Hager, skólann með 45 nýjum og glæsilegum töfluskápum. Skáparnir frá Hager sem eru af Universe-gerð eru góð viðbót við nýbygginguna sem opnar á næsta ári. Á myndinni sést Helgi Guðlaugsson rekstarstjóri Johan Rönning afhenda Guðrúnu Hrefnu Guðmundsdóttur skólameistara FB og Sigursteini Óskarssyni fagstjóra rafvirkjabrautar FB, skápana frá Hager.

25. september 2026
Sköpun, endurnýting og þjóðlegar hefðir í Nordplus-verkefni
10. september 2026
Anne boðið að taka þátt í Iceland Fashion Week
Fleiri færslur