Mennta- og barnamálaráðherra í heimsókn

8. maí 2026

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra heimsótti FB

Við fengum góða gesti í gær þegar Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra kom í heimsókn, með henni í för voru Ágúst Ólafur Ágústsson aðstoðarmaður ráðherra og Ragnhildur Bolladóttir skrifstofustjóri framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Guðrún Hrefna skólameistari, Víðir aðstoðarskólameistari og Berglind Halla áfangastjóri gengu með ráðherra um skólann sem kynnti sér skólastarfið og spjallaði við starfsfólk og nemendur. Gestirnir skoðuðu einnig nýja verknámsaðstöðu skólans sem er vel á veg komin en með nýbyggingunum mun verknámsaðstaða við FB meira en tvöfaldast og áætlað er að kennsla hefjist þar í janúar 2027. Meðfylgjandi eru myndir frá heimsókninni.

19. júní 2026
Nýnemar í FB eru 251 talsins
3. júní 2026
Guðrún Hrefna lætur af störfum
Fleiri færslur