Undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í rafvirkjun

Skráning á undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í rafvirkjun er hafin.
Undirbúningsnámskeið verður haldið í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, fyrir sveinspróf í rafvirkjun sem haldið verður í febrúar. Námskeiðið verður haldið dagana 12. – 28. maí og verður kennt á kvöldin (kl. 17:30 - 21:30) ásamt laugardögum (kl. 8:00 - 12:00). Námskeiðsgjald er kr. 60.000.- en þeir sem eru að undirbúa endurtekt á prófi greiða hálft gjald.
Nánari dagskrá verður send út seinna.
Skráið ykkur HÉR:
Vinsamlega farið vel yfir upplýsingarnar ykkar áður en þið staðfestið umsóknina. Misritun í símanúmeri eða netfangi getur valdið því að þið farið á mis við mikilvægar upplýsingar.
