Erasmus+ ferð til Gvadalúpeyja

5. maí 2026

Island to Island: Sustainable Vocational Practice in Iceland and Guadeloupe

Nýverið fóru 12 nemendur af ýmsum verknámsbrautum FB í ævintýralega ferð til borgarinnar Saint-Anne á Gvadelúp-eyjaklasanum í Karabíska hafinu en eyjarnar tilheyra Frakklandi. Heimsóknin var hluti af verkefninu Island to Island: Sustainable Vocational Practice in Iceland and Guadeloupe, sem snýr að sjálfbærni og hnattrænni hlýnun og er styrkt af Erasmus+. Unnið var með nemendahópi úr skólanum Lycée des Métiers General et Technologique Yves Leborgne en nemendur frá þeim skóla heimsóttu FB í mars sl. Unnið var að fjölbreyttum verkefnum í tengslum við raforku, heilbrigði, íþróttir og textíl ásamt sögu og menningu eyjanna með áherslu á hvernig þessar tvær ólíku eyjar glíma við hlýnun jarðar. Meðfylgjandi eru svipmyndir annars vegar frá ferðinni til Gvadelúp og hins vegar frá Íslandsheimsókninni.

10. september 2026
Anne boðið að taka þátt í Iceland Fashion Week
28. ágúst 2026
Reykjafell og Eaton fagna 70 ára afmæli með veglegri gjöf til Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Fleiri færslur