Jólakortasamkeppni

5. nóvember 2025

Hannar þú jólakort FB 2025?

Leiðbeiningar - Samkeppni um gerð jólakorts meðal nemenda FB.

Jólakortið 2025 verður rafrænt.


1. Myndefni: Mikilvægt að gera vel uppbyggða mynd sem gleður augað.

2. Efni og útfærsla: Útfærslan getur verið af fjölbreytilegri gerð, teikning með blýanti, krít eða bleki. Málaðar myndir með vatns-, þekju-, akrýl- eða tússlitum á pappír eða þrykkimyndir. Einnig væri hægt að vinna hreyfimynd (t.d. í Photoshop) þar sem kortið verður rafrænt.

3. Stærð myndar: Stærð myndar er aukaatriði. Hægt er að smækka eða stækka myndina.

4. Fjöldi innsendra mynda: Keppendur mega senda fleiri en eina tillögu.

5. Nafnleynd: Nafn keppanda skal fylgja með umsókn. Ef umsókn er skilað á skrifstofu þá skal nafn keppanda fylgja í lokuðu umslagi sem er tryggilega fest við tillögu.

6. Skilafrestur: Frestur til að skila inn tillögum er 2. desember 2025. Hægt er að skila tillögum á bókasafn skólans eða í tölvupósti á netfangið jolakort@fb.is.


Skólinn áskilur sér rétt til að nýta jólakortið sem jólakveðju skólans.

Dómnefnd skipa skólameistari og listnámskennarar skólans.


18. febrúar 2026
Framundan í skóladagatali
17. febrúar 2026
FB hlýtur styrk frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu
Fleiri færslur