FB fær gjöf frá Reykjafelli og Eaton

28. ágúst 2026

Reykjafell og Eaton fagna 70 ára afmæli með veglegri gjöf til Fjölbrautaskólans í Breiðholti

Í tilefni af 70 ára afmæli Reykjafells og Eaton gaf fyrirtækið rafvirkjabraut FB nýjustu kynslóð af Easy E4 stýrieiningum — samtals 20 stykki — ásamt 30 stækkunareiningum til að auka notkunarmöguleika búnaðarins enn frekar. Stækkunareiningarnar skiptast jafnt í þrjá flokka, 10 af hverri gerð:


  • Stafrænar einingar – fyrir einföld af/á merki
  • Analog einingar – fyrir stiglaus merki, t.d. þrýsting eða hraða
  • Hitanemaeiningar – fyrir tengingu og lestur hitaskynjara



Easy E4 er sveigjanleg og notendavæn lausn sem hentar vel í fjölbreytta sjálfvirkni, hvort sem um ræðir minni stýringar eða flóknari kerfi. Gjöfin endurspeglar áralangt og farsælt samstarf Fjölbrautaskólans í Breiðholti við Eaton og Reykjafell og styrkir enn frekar alla þjónustu og þær lausnir sem Eaton og Reykjafell geta boðið viðskiptavinum sínum.


Fjölbrautaskólinn í Breiðholti þakkar kærlega fyrir þessa veglegu gjöf Reykjafells og Eaton í tilefni afmælisins.


5. október 2026
Starfsbrautin er tilnefnd fyrir framúrskarandi skólastarf
25. september 2026
Sköpun, endurnýting og þjóðlegar hefðir í Nordplus-verkefni
Fleiri færslur