Frá fatahönnun í FB á rauða dregilinn
Anne boðið að taka þátt í Iceland Fashion Week
Anne Dellysdóttir, nemandi á fata- og textílbraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, fékk nýverið tækifæri til að sýna eigin hönnun á rauða dreglinum hjá EFWI (Erlendur fashion week Iceland). Anne hefur lengi haft mikinn áhuga á tísku og ekki síður því ferli sem liggur að baki hverri flík, allt frá fyrstu hugmynd að fullunninni hönnun. Sá áhugi varð til þess að hún hóf nám í FB þar sem hún hefur unnið að því að efla sköpunargáfu sína og færni í hönnun og fatagerð.
Í náminu hannaði og saumaði Anne kjól sem valinn var til sýningar á rauða dreglinum hjá EFWI. Kjóllinn vakti þar töluverða athygli meðal hönnuða og annarra gesta. Í kjölfarið fékk Anne boð um að taka þátt í Iceland Fashion Week á næsta ári. Þar stefnir hún á að sýna nýja fatalínu undir eigin merki, Anne Gonlagá. Boðið er stórt skref fyrir Anne, sem lítur á það bæði sem viðurkenningu á þeirri vinnu sem hún hefur lagt í hönnun sína og hvatningu til að halda áfram að þróast sem fatahönnuður.
Við hlökkum til að fylgjast með næstu skrefum Anne og óskum henni til hamingju með þennan glæsilega árangur. Á meðfylgjandi myndum má sjá myndir af kjólnum og hönnunarferlinu.



