Útskriftarhátíð FB

28. maí 2024

Útskriftarhátíð FB

Glæsileg útskriftarhátíð FB fór fram í Hörpu í gær að viðstöddu fjölmenni. Óskum öllum innilega til hamingju með árangurinn! Theódór Helgi Kristinsson var dúx skólans með einkunnina 9.65. Valdís Valbjörnsdóttir sem útskrifaðist af snyrtibraut söng svo fallega. Theódór Helgi lék stórkostlega tvö verk á flygilinn. Hildur Eva Þórðardóttir sem útskrifaðist af rafvirkjabraut og sem stúdent hélt flotta ræðu fyrir hönd útskriftarnema sem og Garðar Freyr Bjarkason sem útskrifaðist bæði sem sjúkraliði og stúdent. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni og Víðir Stefánsson flutti yfirlitsræðu.



Fleiri myndir koma fljótlega.

23. júní 2025
263 nýnemar hefja nám við FB í haust
28. maí 2025
Sumar 2025
Fleiri færslur