Fréttatilkynning
FB hlýtur styrk frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur hlotið styrk frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu til að fullvinna námsefni fyrir nemendur í íslensku sem öðru máli á kunnáttustigi A2-B2 evrópska tungumálarammans (ETM). Námsefnið byggir á skipulegan hátt upp námsorðaforða sem byggir brú yfir í annað nám og veitir þannig nemendum tækifæri til inngildandi náms í íslensku.
Stærsta áskorun nemenda af erlendum uppruna í námi er vöntun á akademískum orðaforða og skortur á tækifærum til þess að beita honum. Námsefnið byggir á orðaforðalistum eins og, „Listi yfir 1000 algengustu orðin í íslensku“, „Orðaforðalistinn“ (a og b hluti), „LÍNO 2“ eða „íslenskur námsorðaforði“. Með markvissri uppbyggingu orðaforðans öðlast nemendur sífellt dýpri skilning á orðfæri skólabókanna. Breiður grunnur eykur líkur á jöfnum námstækifærum fyrir alla nemendur óháð uppruna sem og tækifærum til þess að taka virkan þátt í íslensku samfélagi.
Afrakstur verkefnisins „ÍSAN til inngildingar" verður heildstætt námsefni til notkunar við kennslu átta áfanga í íslensku sem öðru máli á framhaldsskólastigi þar sem allir fjórir færniþættir tungumálsins eru þjálfaðir. Efnið er unnið af fjórum reyndum kennurum í FB sem hafa markvisst verið að byggja upp efni og reynslu undanfarin ár. Styrkurinn gerir þeim kleift að fullvinna efnið og undirbúa það fyrir notkun víðar.
Menntaskólinn á Ísafirði hefur tekið að sér að prufukenna hluta efnisins á vorönn 2026. Mikilvægt er að fá sjónarhorn minni skóla þar sem mikið reynir á gæði efnisins til einstaklingsmiðaðrar kennslu. Sigríður Ólafsdóttir dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands mun taka þátt í mati á afrakstri og áhrifum verkefnisins.
- Guðbjörg R. Þórisdóttir, Sigurgrímur Skúlason og Auðun Valborgarson. (e.d.). Sjónrænn orðaforði. Gerð 1000 orða listans. Læsisvefurinn. https://laesisvefurinn.is/wp-content/uploads/2020/06/1000_alg_ord_2020_endursk.pdf
- Elsa Pálsdóttir. (2027). Orðaforðalisti án aldursviðmiða. Menntamálastofnun. Ordalisti.indd
- Auður Pálsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. (2023). Íslenskur námsorðaforði. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://netla.hi.is/greinar/2023/alm/09.pdf

