Rán sigurvegari söngvakeppninnar

30. janúar 2026

Söngvakeppni FB fór fram í gær

Söngvakeppni FB fór fram í gær, fimmtudaginn 29. janúar, og það var Rán sem bar sigur úr býtum með laginu It's Oh So Quiet. Dómnefndin var skipuð af Andreu Jónsdóttur útvarpskonu, Iveta Licha enskukennara í FB og Jóhanni Gunnari Kristjánssyni formanni Sultunnar, tónlistarnefndar FB. Við óskum Rán innilega til hamingju með sigurinn og hlökkum til að fylgjast með Söngvakeppni framhaldsskólanna sem fer fram 11. apríl í Háskólabíó.

30. október 2026
Myndlistarnemar FB í námsferð til Ítalíu
22. október 2026
Vetrarfrí
Fleiri færslur